Fotbolti.net
24.04.22 - 22:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Souness og Carragher telja heppnina hafa verið með Liverpool

Graeme Souness.

Graeme Souness.

Canon

Mynd: Getty Images

Graeme Souness, fyrrum leikmaður og stjóri Liverpool, segir að Sadio Mane hafi verið heppinn að fá ekki rauða spjaldið gegn Everton í dag.
Liverpool fór með 2-0 sigur af hólmi í leiknum þar sem bæði mörk komu í seinni hálfleik.

Það sauð upp úr í lok fyrri hálfleiks og Mane fékk meðal annars að líta gula spjaldið fyrir þátttöku sína í því.

Hann ýtti í Allan og potaði í augað á Mason Holgate. Menn velta fyrir sér hvort það hefði átt að vera annar litur á spjaldinu.

„Mane er heppinn þarna," sagði Souness. Annar fyrrum Liverpool maður, Jamie Carragher, var einnig með í útsendingu Sky frá leiknum. Hann var á því að Everton hefði átt að fá vítaspyrnu í stöðunni 0-0, þegar Anthony Gordon féll í teignum. Ekkert var hins vegar dæmt á það.

Sjá einnig:
Sjáðu myndirnar: Átti Mane að fá rautt spjald?
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.