Fotbolti.net
24.04.23 - 16:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stellini rekinn frá Tottenham (Staðfest) - Mason tekur við

Stellini og Conte.

Stellini og Conte.

Canon

Mynd: Getty Images

Cristian Stellini var í dag rekinn frá Tottenham eftir mánuð í starfi sem aðalþjálfari liðsins. 6-1 tapið gegn Newcastle var síðasti naglinn í kistuna.

Stellini var aðstoðarmaður Antonio Conte sem var látinn fara í síðasta mánuði og var Stellini ráðinn bráðabirgðastjóri út tímabilið. Tottenham hefur leikið fjóra leiki eftir að Conte var látinn fara. Fyrst gerði liðið 1-1 jafntefli við Everton, vann svo heppnissigur gegn Brighton, tapaði næst 2-3 á heimavelli gegn Bournemouth og tapaði svo með fimm mörkum gegn Newcastle í gær.
„Frammistaðan gegn Newcastle á sunnudag var algjörlega óásættanleg. Þetta var hrikalegt að sjá. Við getum horft í marga hluti hvers vegna þetta gerðist. Ég, stjórnin, þjálfararnir og leikmennirnir verðum saman að bera ábyrgð, en að lokum er ábyrgðin hjá mér," segir Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, í yfirlýsingu rétt í þessu.

„Cristian mun yfirgefa sína stöðu ásamt teymi sínu. Cristian kom inn á erfiðum tíma á tímabilinu og ég vil þakka honum fyrir fagmennskuna sem hann hefur sýnt. Við óskum honum og hans starfsteymi góðs gengis."

„Ryan Mason tekur við sem aðalþjálfari. Ryan þekkir félagið og leikmenina vel. Við munum upplýsa nánar með þjálfarateymið fljótlega."

„Ég ræddi við leikmennina og hópurinn er ákveðinn í að enda tímabilið eins vel og hægt er,"
segir Levy.

Tottenham er sem stendur í fimmta sæti deildarinnar, sex stigum frá Meistaradeildarsæti og hefur spilað leik meira en Newcastle og tveimur leikjum meira en Manchester United. Liverpool á leik til góða á Tottenham og getur með sigri í þeim leik komist upp fyrir Tottenham.

Næsti leikur liðsins er gegn Manchester United á fimmtudag.
Ryan Mason

Ryan Mason

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.