Fotbolti.net
24.06.23 - 16:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Lífið er búmerang og þeir sem kasta skít frá sér fá skít til baka"

Auglýsing
„Lífið er búmerang og þeir sem kasta skít frá sér fá skít til baka"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur sótti þrjá punkta til Eyja í dag þegar liðið mætti ÍBV. Arnar Grétarsson þjálfari liðsisn var ánægður með sigurinn en ekki sáttur að þessi leikur skildi fara fram við erfiðar aðstæður.

„Mikil ánægja að sækja þrjá punkta. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur, bæði vallaraðstæður og veðrið sem er ekkert að hjálpa að spila fótbolta. Þetta er fifty fifty að fara í svona leik. Stórkostleg tilþrif í markinu í fyrri hálfleik svo er þetta basl," sagði Arnar.

„Leikurinn átti að vera upphaflega klukkan fjögur en svo var því breytt. Vestmannaeyingarnir vildu breyta því það er ákveðin hátíð hérna. Við urðum við þeirri beiðni en svo þegar við áttum okkur á því að spáin var ekki glæsileg fyrr í vikunni og spáin var enn verri í gær en hún var núna. Við vildum breyta leiknum í klukkan 5," sagði Arnar.

Arnar kallaði eftir því að KSÍ hefði stigið inn í þar sem hann taldi aðstæðurnar ekki við hæfi til að spila fótbolta.

„Þeir vildu það ekki og mér finnst það miður, ég verð að segja alveg eins og er, það er þeirra að eiga við það, lífið er búmerang og þeir sem kasta skít frá sér fá skít til baka."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.