HM: Fyrsti sigur Mexíkó í útsláttakeppni í 40 ár

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mexíkó 2 - 0 Ekvador
1-0 Julian Quinones ('22 )
2-0 Raul Jimenez ('31 )
Rautt spjald: Piero Hincapie, Ecuador ('90)

Mexíkó tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum á HM í nótt þegar liðið lagði Ekvador á Azteca vellinum í Mexíkóborg.
Leikurinn átti upphaflega að fara af stað klukkan eitt var frestað um klukkutíma vegna þrumuveðurs á svæðinu. Þetta er í annað sinn á mótinu sem þrumuveður hefur áhrif.
Hinn 17 ára gamli Gilberto Mora er næstyngsti leikmaður sögunnar til að byrja leik í útsláttakeppni á HM en sá yngsti er brasilíska goðsögnin Pele. Mora átti skot snemma leiks en boltinn fór rétt framhjá.
Stuttu áður fékk Raul Jimenez dauðafæri en skallaði framhjá. John Yeboah fékk fyrsta tækifæri Ekvador en skotið fór í utanverða stöngina.
Mexíkó braut ísinn þegar Julian Quinones slapp í gegn eftir sprett frá eigin vallarhelming og negldi boltanum í netið. Jimenez bætti síðan öðru markinu við stuttu síðar eftir laglegt samspil við Quinones.
Cesar Montes hefði getað innsiglað sigur Mexíkó eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hann átti skalla að marki en Hernan Galindez varði glæsilega frá honum.
Piero Hincapie, leikmaður Ekvador, var pirraður í lokin og fékk rautt spjald fyrir að halda um munninn þegar hann sagði eitthvað við Brian Gutierrez.
Mexíkó mætir sigurvegaranum úr leik Englands og Kongó, sem mætast klukkan 16 á morgun, 16-liða úrslitum.