Fotbolti.net
01.07.26 - 07:00
Víðir Sigurðsson

Þetta gerðist í 12. umferð: Tvö lið ógna meti ÍA - Besta hjá Fram en versta hjá KA - Kristinn fjórði - Félagsmet hjá FH

Víkingar eru með mjög góða stöðu á toppi Bestu deildar karla og langt er síðan lið hefur fengið á sig jafn fá mörk.

Víkingar eru með mjög góða stöðu á toppi Bestu deildar karla og langt er síðan lið hefur fengið á sig jafn fá mörk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Víkingar eru komnir með mesta forskot sem lið hefur náð á toppi Bestu deildar karla í sautján ár eftir að þeir sigruðu Breiðablik 4-1 í 12. umferð deildarinnar síðasta fimmtudag og KR-ingar töpuðu 3-2 í Keflavík á sunnudaginn.

Markamet sem Skagamenn hafa átt í 33 ár er komið í hættu og tvö lið ógna því, slæmt gengi KA er orðið sögulegt, Fram er í sinni bestu stöðu í 35 ár og varnarleikur Víkinga er líka ofarlega á lista. Nánar er fjallað um þetta í þessari grein. Kristinn Jónsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Emil Atlason, Markus Lund Nakkim, Alpha Conteh og Benjamín Bæring Þórsson eru enn fremur á meðal þeirra sem koma við sögu í þessari yfirlitsgrein um eitt og annað sem gerðist í 12. umferðinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.