Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason er í liði vikunnar í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.
Arnór gekk til liðs við New England Revolution fyrir tímabilið en hann skoraði fyrstu tvö mörk sín fyrir félagið á dögunum.
Hann gerði mörkin í 5-0 sigri á Inter Miami, fyrra markið með skalla og það síðara með laglegu skoti úr teignum.
Arnór fær sæti í liði vikunnar fyrir frammistöðuna en New England er á toppnum í Austurdeildinni með 30 stig.
Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem Íslendingur er í liði vikunnar en Guðmundur Þórarinsson, leikmaður New York City FC, náði þeim merka áfanga fyrir tæpum mánuði síðan.
⭐️ Ballers ⭐️https://t.co/opl3FSHsBE | @AudiOfficial #GoalsDriveProgress pic.twitter.com/TIGagYJsTR
— Major League Soccer (@MLS) July 23, 2021
Athugasemdir