Fotbolti.net
24.07.23 - 14:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Björgvin Stefáns í Þrótt Vogum (Staðfest) - Sex leikmenn komnir

Björgvin fagnar marki með KR.

Björgvin fagnar marki með KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Þróttar Vogum í upphafi félagaskiptagluggans.
Félagið er búið að krækja í sóknarmanninn Björgvin Stefánsson frá nágrönnum sínum í Haukum.

Framherjinn gekk í raðir Hauka frá KR fyrir tímabilið en hann hefur komið við sögu í sjö leikjum í 2. deildinni í sumar. Hann hafði ekki spilað fótbolta í þrjú ár vegna veikinda áður en hann samdi við Hauka. Í sumar hefur hann aðeins byrjað einn leik en hann er núna farinn í Þrótt.

Hann getur spilað sinn fyrsta leik fyrir Þrótt í kvöld þegar þeir mæta einmitt Haukum.

Rúnar kominn frá Keflavík
Þróttur hefur líka samið við markvörðinn Rúnar Gissurarson sem kemur frá Keflavík. Rúnar er með góða reynslu úr 2. deild eftir að hafa spilað með Njarðvík og Reyni Sandgerði í þeirri deild.

Þróttarar eru þá búnir að ganga frá félagaskiptum við Birki Þór Guðmundsson sem kemur frá Noregi, Jóhannes Karl Bárðarson sem kemur á láni frá Víkingi, Valdimar Inga Jónsson sem kemur úr ÍR og Þorgeir Ingvarsson sem kemur frá Ægi.

Þróttarar eru sem stendur í sjötta sæti 2. deildar, sex stigum frá Dalvík/Reyni sem er í öðru sæti. Þróttur á leik til góða á Dalvíkinga.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.