FCK kaupir leikmann á 440 milljónir fyrir leikinn gegn Blikum

Elias Achouri fagnar marki með Viborg.

Mynd: Getty Images

Elias Achouri fagnar marki með Viborg.

Mynd: Getty Images
FC Kaupmannahöfn, andstæðingar Breiðabliks í forkeppni Meistaradeildarinnar, voru í morgun að ganga frá kaupum á Elias Achouri frá Viborg.
Kaupverðið er rumlega 440 milljónir íslenskra króna eða rúmlega 3 milljónir evra. Hann er í 14. sæti yfir dýrustu leikmenn í sögu FCK en samkvæmt Transfermarkt þá er Andreas Cornelius dýrastur en hann kostaði 6 milljónir evra í fyrra.
Ísak Bergmann Jóhannesson er í þriðja sæti á þeim lista en hann kostaði 4,5 milljónir evra.
Achouri er 24 ára gamall framherji frá Túnis sem vakti athygli með Viborg en hann skoraði þá sex mörk og lagði upp níu. „Við teljum Elias vera einn mest spennandi leikmann dönsku úrvalsdeildarinnar," segir Peter Christiansen, yfirmaður fótboltamála hjá Kaupmannahafnarfélaginu.
Ashouri ferðast með FCK til Íslands fyrir leikinn gegn Breiðabliki á morgun en hann fær treyju númer 30. Það að FCK sé að kaupa leikmann á svona mikinn pening segir mikið um styrk þeirra liðs.