Heimir Guðjóns eftir tap gegn Fylki: Þetta hefur verið okkar saga
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson þjálfari FH var ansi svekktur og það skiljanlega eftir 2-4 tap gegn Fylkismönnum á heimavelli í Bestu deild karla en liðin áttust við í kvöld.
"Eins og alltaf vonbrigði að tapa við höfum verið sterkir á heimavelli og núna annan leikinn í röð erum við að fá á okkur eitthvað skrípamark í lokin sama og móti KR, við erum í horni svo koma þeir á okkur og skora. Leikurinn í sjálfu sér, mér fannst við ekkert geta í fyrri hálfleik en fannst við samt vera betri aðilinn en erum að gefa klaufaleg mörk á okkur en fannst við mjög góðir í seinni, eitt lið á vellinum og jöfnuðum leikinn sanngjarnt en náum ekki að nýta okkur þessa yfirburði bæði í fyrri og seinni" Sagði Heimir í viðtali við Fótbolta.net beint eftir leik.

FH klúðra dauðafæri í fyrri hálfleik og nokkrum sekúndum síðar skora Fylkismenn fyrsta mark leiksins.
"Það hefur verið okkar saga að við missum fókus og gleymum því að í fótbolta þarf að halda fókús í 90 plús mínútur þess vegna erum við að fá á okkur oft á tíðum mjög skrítin mörk sem á auðveldlega að vera hægt að koma í veg fyrir"
Úlfur Ágúst Björnsson sem hefur verið einn besti leikmaður FH í sumar er á leiðinni í Duke háskólann í Bandaríkjunum, hversu mikið á hann eftir í FH og verður Kjartan Henry þá bara augljós fyrsti framherji á blað?
"Ég held að hann eigi bara einn leik eftir og það sé næsti leikur á móti Keflavík. Kjarri hefur komið inn í FH og staðið sig mjög vel, skorað mörk og hjálpað yngri leikmönnum og hann er og verður alltaf klár eins og hann hefur verið í allt sumar"
Viðtalið við Heimi má sjá hér fyrir ofan en þar talar Heimir einmitt um félagsskiptabannið sem FH er í og framhaldið hvað það varðar.