Fotbolti.net
24.07.23 - 09:20
Elvar Geir Magnússon

Man Utd aftur í slaginn um Kane? - Chelsea og City hafa áhuga á Olise

Harry Kane er fyrirliði enska landsliðsins.

Harry Kane er fyrirliði enska landsliðsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Powerade
Hnausþykkur slúðurpakki. Kane, Olise, Mbappe, Fabinho, Lukaku, Höjlund, Zaha, Hudson-Odoi og Gray eru meðal manna sem koma við sögu þennan mánudaginn.
Daniel Levy stjórnarformanni Tottenham hefur verið sagt að hann þurfi að selja Harry Kane (29) í sumar ef hann fær enska sóknarmanninn ekki til að skrifa undir nýjan samning. (Telegraph)

Þessar fréttir hafa vakið Manchester United sem gæti blandað sér í slaginn um Kane á nýjan leik. (Mirror)

Bayern München býr sig undir að gera þriðja tilboðið í Kane en tveimur tilboðum Þýskalandsmeistaranna hefur verið hafnað. (Mail)

Bayern er tilbúið að bjóða Kane fjögurra til fimm ára samning. (Bild)

Sala Fabinho (29) frá Liverpool til Al-Ittihad er í óvissu þar sem ekki er vitað hvort brasilíski miðjumaðurinn megi taka hundana sína, tvo franska bolabíta, með til Sádi-Arabíu. (Express)

Chelsea hefur gert tilboð í Micheal Olise (21) hjá Crystal Palace. Franski sóknarleikmaðurinn hefur þegar gert munnlegt samkomulag við Chelsea um kaup og kjör. (RMC Sport)

Manchester City hefur einnig áhuga á Olise en hann er með riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda í samningi sínum. (Fabrizio Romano)

Al-Hilal mun gera 173 milljóna punda tilboð í Kylian Mbappe (24) hjá Paris St-Germain. Sádi-arabíska félagið mun bjóða Mbappe tveggja ára risasamning sem verður hugsanlega með riftunarákvæði sem opnar möguleika fyrir hann að fara til Real Madrid að ári. (Tancredi Palmeri)

Chelsea er að missa þolinmæðina gagnvart Romelu Lukaku (30) en belgíski sóknarmaðurinn vill ekki fara til Sádi-Arabíu. Hann bíður eftir því að evrópskt félag kaupi sig. (Gazzetta dello Sport)

Danski sóknarmaðurinn Rasmus Höjlund (20) hjá Atalanta vill fara til Manchester United fyrir mánaðamót. Hann hefur þegar gert munnlegt samkomulag við United um kaup og kjör. (Teamtalk)

Fílabeinsstrendingurinn Wilfried Zaha (30) mun ganga í raðir Galatasaray i Tyrkland. Hann er fáanlegur á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Crystal Palace. (Guardian)

Marco Silca stjóri Fulham hefur hafnað 40 milljóna punda tilboði frá Al-Ahli í Sádi-Arabíu og heldur tryggð við Lundúnafélagið. (Telegraph)

Chelsea er aftur farið að ræða við Sádi-arabísku deildina um mögulega sölu á marokkóska vængmanninum Hakim Ziyech (30). (Teamtalk)

Enski vængmaðurinn Callum Hudson-Odoi (22) er nálægt því að fara til Lazio þar sem hann mun aftur spila undir stjórn Maurizio Sarri, fyrrum stjóra Chelsea. (Gazzetta dello Sport)

Fulham er enn að reyna að skáka Lazio í baráttunni um Hudson Odoi, leikmann Chelsea. (Nicolo Schira)

Fulham er tilbúið að borga 7 milljónir punda fyrir Demarai Gray (27) en Everton hyggst selja jamaíska vængmanninn. (Sun)

Fulham hefur hafnað 50 milljóna punda tilboði frá West Ham í portúgalska miðjumanninn Joao Paulhinha (28). (90min)

West Ham er bjartsýnt á að tryggja sér mexíkóska miðjumanninn Edson Alvarez (25) frá Ajax fyrir allt að 40 milljónir punda í sumar. (Football Insider)

Atletico Madrid hefur haft samband við Paris St-Germain vegna áhuga á ítalska miðjumanninum Marco Verratti (30). Liverpool og Tottenham eru líka áhugasömu. Pierre-Emile Höjbjerg (27) hjá Tottenham er einn af varakostum Atletico. (Marca)

Ítalski sóknarmaðurinn Gianluca Scamacca (24) gæti gengið í raðir Roma ef West Ham kaupir belgíska sóknarmanninn Divock Origi (28) frá AC Milan. Viðræður við Chelsea um albanska sóknarmanninn Armando Broja (21) sigldu í strand. (Gazetta dello Sport)

Brentford, félög í Sádi-Arabíu og Besiktas í Tyrklandi hafa áhuga á enska miðjumanninum Alex Oxlade- Chamberlain (29) sem yfirgaf Liverpool eftir að samningur hans rann út. (Mirror)

Franski vængmaðurinn Ousmane Dembele (26) hefur hafnað fimm ára samningi frá Al-Nassr í Sádi-Arabíu. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelona og ætlar að vera þar áfram. (Foot Mercato)

Austurríski miðjumaðurinn Marcel Sabitzer (29) vill helst fara til Borussia Dortmund. Hann var lánaður til Manchester United frá Bayern München á síðasta tímabili. (Kicker)

Enski varnarmaðurinn Taylor Moore (26) nálgast endurkomu til Frakklands eftir að hafa yfirgefið Bristol City. Hann er á leið til Valenciennes. (Football Insider)

Everton og Atalanta eru í viðræðum við Almeria um sóknarmanninn El Bilal Toure (21) frá Malí. (Fabrizio Romano)

Úlfarnir munu væntanlega selja Daniel Podence (27) eftir að portúgalski vængmaðurinn ferðaðist ekki með félaginu í æfingabúðir í Portúgal. (Mail)

Nice í Frakklandi vill fá portúgalska bakvörðinn Ricardo Pereira (29) frá Leicester. (Foot Mercato)

Tvö félög frá Sádi-Arabíu eru í viðræðum við Manchester United um varnarmanninn Eric Bailly (29). (Sky Sports)
Michael Olise.

Michael Olise.

Canon

Mynd: EPA

Zaha í landsleik með Fílabeinsströndinni.

Zaha í landsleik með Fílabeinsströndinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Callum Hudson-Odoi.

Callum Hudson-Odoi.

Canon

Mynd: Getty Images

Marco Verratti.

Marco Verratti.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.