Fotbolti.net
24.07.23 - 18:14
Brynjar Ingi Erluson

Marcel Sabitzer frá Bayern til Dortmund (Staðfest)

Marcel Sabitzer frá Bayern til Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Borussia Dortmund

Borussia Dortmund hefur fest kaup á austurríska miðjumanninum Marcel Sabitzer frá Bayern München en félagið greiðir um 19 milljónir evra fyrir kappann.
Sabitzer er 29 ára gamall og spilaði einungis eitt og hálft tímabil með Bayern.

Á síðustu leiktíð var hann lánaður til Manchester United, þar sem hann gerði ágæta hluti, en félagið hafði ekki áhuga á að gera skiptin varanleg.

Í dag var hann kynntur sem nýr leikmaður Borussia Dortmund og gerði hann fjögurra ára samning.

Sabitzer skapaði sér nafn í þýsku deildinni með RB Leipzig en hann lék með liðinu í sjö ár áður en hann var seldur til Bayern.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.