Segir Amrabat á leið til Man Utd

Sofyan Amrabat er á leið í ensku úrvalsdeildina

Mynd: Getty Images

Sofyan Amrabat er á leið í ensku úrvalsdeildina

Mynd: Getty Images
Marokkómaðurinn Sofyan Amrabat er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United en þetta segir marokkóski blaðamaðurinn Izem Anass.
Þessi 26 ára gamli varnarsinnaði miðjumaður heillaði alla upp úr skónum með frammistöðu sinni á HM í Katar er Marokkó komst í undanúrslit mótsins.
Atlético Madríd, Liverpool og Inter eru meðal þeirra félaga sem hafa sýnt honum áhuga síðustu vikur en miðað við færslu Izem Anass, virðist Amrabat hafa gert upp hug sinn og er nú á leið til Manchester United frá Fiorentina.
Anass er með virtustu blaðamönnum Marokkó og segir hann að skiptin séu svo gott sem frágengin.
Kaupverðið er talið nema í kringum 30-35 milljónum punda en þetta verður þriðji leikmaðurinn sem United fær í glugganum á eftir Mason Mount og André Onana.

???????????????????????????????????? ????????????????
— Izem Anass (@Izemanass) July 24, 2023
???????????????? ???????????????? ???????????????????? / ???????????????????????? ???????????????????????????? ???????????????????????????? ???????????????????????????????????????? ????????????????????????. pic.twitter.com/bwyjOi0VX7