Wilfried Zaha búinn að skrifa undir hjá Galatasaray (Staðfest)

Mynd: Galatasaray

Mynd: Galatasaray
Fílabeinsstrendingurinn Wilfried Zaha er nú formlega genginn í raðir Galatasaray í Tyrklandi.
Zaha hafnaði fjögurra ára samningstilboði Crystal Palace og valdi það frekar að fara til Tyrklands.
Hann lenti í Istanbúl í gærkvöldi og skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið.
Sóknarmaðurinn mun þéna 8 milljónir punda í árslaun hjá Galatasaray.
Zaha var á mála hjá Palace í samtals nítján ár. Hann hóf feril sinn þar og spilaði með liðinu til 2013 en þá var hann keyptur til Manchester United. Hann fór tvisvar á láni til Palace frá United áður en hann var keyptur aftur til félagsins.

???? Türkiye'nin en büyü?üne ho? geldin @wilfriedzaha! ?????? pic.twitter.com/zlvXDYIqHf
— Galatasaray SK (@GalatasaraySK) July 24, 2023