Schalke 0 - 3 FC Bayern
0-1 Robert Lewandowski ('20, víti)
0-2 Robert Lewandowski ('50)
0-3 Robert Lewandowski ('75)
0-1 Robert Lewandowski ('20, víti)
0-2 Robert Lewandowski ('50)
0-3 Robert Lewandowski ('75)
Pólski framherjinn Robert Lewandowski afgreiddi Schalke upp á eigin spýtur í dag. Hann skoraði öll þrjú mörk leiksins.
Þýskalandsmeistararnir kíktu í heimsókn og leiddu í hálfleik eftir vítaspyrnumark í fyrri hálfleik.
Lewandowski tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari hálfleiks með stórglæsilegu marki beint úr aukaspyrnu.
Þriðja markið skoraði Lewandowski úr skyndisókn. Hann átti meistaralega fyrstu snertingu á boltanum sem kom honum framhjá vörninni og eftirleikurinn auðveldur.
Bayern lenti ekki í vandræðum gegn Schalke og er með fjögur stig eftir 2-2 jafntefli við Hertha Berlin í fyrstu umferð.
Þetta var annar leikur David Wagner við stjórnvölinn hjá Schalke og er liðið með eitt stig eftir markalaust jafntefli við Borussia Mönchengladbach fyrir viku.
Bayern fær Mainz í heimsókn eftir viku á meðan Schalke tekur á móti Hertha Berlin.
Athugasemdir