Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 24. september 2020 18:24
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið Breiðabliks og Stjörnunnar: Höskuldur á bekknum
Oliver er fyrirliði í dag
Oliver er fyrirliði í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jósef er kominn aftur í Stjörnuliðið
Jósef er kominn aftur í Stjörnuliðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 19:15 hefst leikur Breiðabliks og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla. Liðin eru í fjórða og þriðja sæti deildarinnar og í harðri Evrópusætabaráttu.

Breiðablik hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum og Stjörnumenn töpuðu 5-1 gegn Val í síðustu umferð. Bæði lið hafa því fullt að sanna í kvöld. Byrjunarliðin eru nú klár.

Breiðablik gerir tvær breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Oliver Sigurjónsson kemur inn fyrir Höskuld Gunnlaugsson og tekur einnig fyrirliðabandið af honum. Þá kemur Damir Muminovic inn í stað Viktors Arnar Margeirssonar.

Stjörnumenn gera einnig tvær breytingar á liði sínu. Guðjón Pétur Lýðsson er á láni frá Breiðablik og er því ekki gjaldgengur í leikinn í dag. Þá kemur Elís Rafn Björnsson einnig út. Þeir Halldór Orri Björnsson og Jósef Kristinn Jósefsson koma inn. Liðin má sjá hér að neðan.

BEINAR TEXTALÝSINGAR:
19:15 Fylkir - Víkingur
19:15 Breiðablik - Stjarnan

Byrjunarlið Breiðabliks:
12. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson (f)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
8. Viktor Karl Einarsson
9. Thomas Mikkelsen
10. Brynjólfur Willumsson
11. Gísli Eyjólfsson
16. Róbert Orri Þorkelsson
25. Davíð Ingvarsson
30. Andri Rafn Yeoman


Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
7. Guðjón Baldvinsson
8. Halldór Orri Björnsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson
29. Alex Þór Hauksson (f)

BEINAR TEXTALÝSINGAR:
19:15 Fylkir - Víkingur
19:15 Breiðablik - Stjarnan
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner