Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. september 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Liverpool og Man City mæta í deildabikarinn
Mynd: Getty Images
Það eru þrír leikir á dagskrá í enska deildabikarnum í kvöld. Fjörið hefst klukkan 18:00 þegar Aston Villa heimsækir Bristol City.

Rétt áður en flautað er til hálfleiks fara tveir aðrir leikir af stað. C-deildarlið Lincoln City tekur á móti Liverpool á meðan Manchester City fær Bournemouth í heimsókn.

Einn leikur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2, þegar Lincoln fær Liverpool í heimsókn.

Liverpool mætir Arsenal í næstu umferð ef liðið sigrar í kvöld. Sigurvegarinn úr viðureign Man City og Bournemouth heimsækir Burnley í 16-liða úrslitum.

Leikir kvöldsins:
18:00 Bristol City - Aston Villa
18:45 Man City - Bournemouth
18:45 Lincoln City - Liverpool (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner