Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. september 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ofurbikarinn í dag - Bayern mætir Sevilla í Búdapest
Mynd: Getty Images
Bayern München og Sevilla mætast í úrslitaleik um Ofurbikar Evrópu þar sem sigurvegari Meistaradeildarinnar mætir sigurvegara Evrópudeildarinnar á hverju ári.

Bæði lið hafa unnið bikarinn einu sinni áður í sögunni en yfirleitt endað í öðru sæti. Bayern hefur þrisvar sinnum tapað úrslitaleiknum og Sevilla hefur gert það fjórum sinnum.

Bayern vann Meistaradeildina með þó nokkrum yfirburðum á síðustu leiktíð á meðan Sevilla barðist hetjulega og sló Manchester United, Wolves og Roma úr leik á leið sinni í úrslitaleikinn gegn Inter.

Sevilla hefur ekki enn spilað keppnisleik á nýju tímabili á meðan Bayern vann sinn fyrsta leik 8-0 gegn Schalke.

Leikurinn fer fram í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands.

Leikur kvöldsins:
19:00 FC Bayern - Sevilla (Stöð 2 Sport 4)
Athugasemdir
banner
banner