Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. september 2022 15:38
Ívan Guðjón Baldursson
U19: Sigurður Steinar skoraði í tapi gegn Svíum
Ísak Daði Ívarsson og Sigurður Steinar eru báðir í U19 landsliðinu.
Ísak Daði Ívarsson og Sigurður Steinar eru báðir í U19 landsliðinu.
Mynd: Víkingur R.

Svíþjóð U19 2 - 1 Ísland U19
1-0 Fredrik Nissen ('1)
2-0 Williot Swedberg ('47)
2-1 Sigurður Steinar Björnsson ('93)


Íslenska landsliðið skipað strákum undir 19 ára aldri var að ljúka seinni æfingaleik sínum í Svíþjóð.

Þar spilaði Ísland við heimamenn eftir að hafa sigrað Noreg í vikunni.

Svíar tóku forystuna snemma leiks þegar Fredrik Nissen skoraði strax á fyrstu mínútu. Williot Swedberg, sem er samningsbundinn Celta Vigo á Spáni, tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari hálfleiks.

Strákarnir okkar náðu að minnka muninn en markið kom alltof seint í leiknum. Sigurður Steinar Björnsson, leikmaður Víkings R., skoraði á 93. mínútu og urðu lokatölur 2-1 fyrir Svía. Kristófer Kristjánsson, leikmaður Þórs, átti stoðsendinguna.

U19 landsliðið á næst leiki í nóvember þar sem það keppir við Frakkland, Ítalíu og Sviss í undanriðli fyrir EM 2023. Þessi gífurlega erfiði riðill verður leikinn á Ítalíu.


Athugasemdir
banner
banner
banner