Fotbolti.net
24.10.17 - 08:00
Mist Rúnarsdóttir
Skrifar frá: Znojmo

Glódís: Lendum í veseni ef við mætum eins og pulsur

Auglýsing
Glódís á æfingu í Znojmo í gær

Glódís á æfingu í Znojmo í gær

Canon

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn

Hertz
<i>„Við erum búnar að endurheimta vel eftir Þýskalandsleikinn og búnar að stilla okkur af. Við erum klárar í þetta verkefni á morgun,“</i> sagði landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir við Fótbolta.net síðdegis í gær. Glódís var þá á leiðinni á síðustu æfingu fyrir leik ásamt liðsfélögum sínum.
„Mér finnst það alls ekki erfitt. Við erum búnar að stilla okkur af og vorum að skoða þær í gær. Í kvöld (gærkvöldi) förum við yfir hvernig við ætlum að mæta þeim,“ svaraði Glódís.

„Við erum bara ótrúlega spenntar. Þetta verður hörkuleikur á móti frábæru liði og ef við ætlum að mæta eins og einhverjar pulsur þá lendum við í veseni.“

En hver er lykillinn að því að vinna sigur gegn Tékkum?

„Ég held það verði svipað og á móti Þýskalandi. Við verðum að nýta það að þær fara með margar í sókn og nýta skyndisóknir þar á móti. Síðan verðum við bara að vera fastar fyrir, færa rétt og vera skipulagðar. Það er lykillinn að þessu,“ sagði Glódís Perla meðal annars en nánar er rætt við hana í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.