Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. október 2020 19:31
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Man Utd og Chelsea: James fjarkaður - Silva bestur
Mynd: Getty Images
Thiago Silva, fyrrum fyrirliði PSG, var besti maður vallarins er Chelsea gerði markalaust jafntefli við Manchester United í bragðdaufum leik á Old Trafford.

Silva fékk 7 í einkunn hjá Sky Sports, rétt eins og þrír liðsfélagar sínir þeir Edouard Mendy, Cesar Azpilicueta og Reece James. Aðeins tveir leikmenn Rauðu djöflanna fengu 7, varnarmennirnir Aaron Wan-Bissaka og Victor Lindelöf.

Daniel James, kantmaður Man Utd, var versti maður vallarins og fékk 4 í einkunn. Fred, Kai Havertz, Timo Werner og Hakim Ziyech fengu 5.

Edinson Cavani kom inná í síðari hálfleik og spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir sitt nýja félag. Hann komst nálægt því að skora með sinni fyrstu snertingu en var atkvæðalítill eftir það og fær 6 fyrir sinn þátt.

Man Utd: De Gea (6), Wan-Bissaka (7), Maguire (6), Lindelof (7), Shaw (6), Fred (5), McTominay (6), James (4), Fernandes (6), Mata (6), Rashford (6)
Varamenn: Cavani (6), Pogba (6), Greenwood (6)

Chelsea: Mendy (7), Azpilicueta (7), Zouma (6), Silva (7), James (7), Kante (6), Jorginho (6), Chilwell (6), Havertz (5), Werner (5), Pulisic (6)
Varamenn: Abraham (6), Mount (6), Ziyech (5)
Athugasemdir
banner
banner
banner