Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. október 2020 11:15
Brynjar Ingi Erluson
Jorginho var opinn fyrir því að fara til Arsenal
Jorginho
Jorginho
Mynd: Getty Images
Ítalski miðjumaðurinn Jorginho segist hafa verið opinn fyrir því að ganga til liðs við Arsenal í sumar en hann sagði frá þessu í viðtali við ESPN.

Jorginho er 28 ára gamall en Maurizio Sarri tók hann með sér frá Napoli er hann tók við Chelsea árið 2018.

Hann hefur spilað stóra rullu í liðinu en Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hafði mikinn áhuga á því að fá hann í sumar.

Viðræður fóru fram en á endanum ákvað Arsenal að kaupa Thomas Partey frá Atlético Madríd.

„Ég er á því að allir leikmenn eru opnir fyrir því að fara í viðræður og það var eitthvað rætt. Það var hins vegar ákveðið að ég yrði áfram hjá Chelsea. Hausinn minn er hér og við eigum eftir að gera frábæra hluti," sagði Jorginho við ESPN í Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner