Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. nóvember 2019 15:11
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Mikilvægur útisigur Bilbao
Athletic Bilbao vann góðan sigur í dag
Athletic Bilbao vann góðan sigur í dag
Mynd: Getty Images
Tveimur fyrstu leikjum dagsins á Spáni er lokið en Athletic Bilbao vann góðan 2-1 útisigur á Osasuna.

Espanyol og Getafe gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik dagsins. Jaime Mata kom gestunum í Getafe yfir á 3. mínútu áður en Wu Lei jafnaði undir lok fyrri hálfleiks.

Bilbao vann þá Osasuna 2-1. Inaki Williams kom Bilbao yfir á 21. mínútu áður en Ezequiel Avila jafnaði metin á fimmtán mínútum fyrir leikslok. Kenan Kodro reyndist hetja Bilbao með marki þremur mínútum síðar og mikilvægur sigur í höfn.

Bilbao er í 5. sæti með 23 stig á meðan Osasuna er í 11. sæti með 19 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Espanyol 1 - 1 Getafe
0-1 Jaime Mata ('3 )
1-1 Wu Lei ('45 )

Osasuna 1 - 2 Athletic
0-1 Inaki Williams ('21 )
1-1 Ezequiel Avila ('76 )
1-2 Kenan Kodro ('79 )
Athugasemdir
banner
banner