Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 25. janúar 2021 22:11
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Athletic kjöldró Getafe
Athletic Bilbao vann öruggan sigur á Getafe
Athletic Bilbao vann öruggan sigur á Getafe
Mynd: Getty Images
Athletic 5 - 1 Getafe
0-1 Marc Cucurella ('1 )
1-1 Raul Garcia ('13 )
1-1 Jaime Mata ('29 , Misnotað víti)
2-1 Yeray Alvarez ('50 )
3-1 Raul Garcia ('61 )
4-1 Alex Berenguer ('75 )
5-1 Oscar de Marcos ('82 )

Athletic Bilbao vann Getafe 5-1 í spænsku deildinni í kvöld en Raul Garcia skoraði tvö fyrir heimamenn.

Getafe átti draumabyrjun í leiknum en Marc Cucurella skoraði eftir aðeins átján sekúndur.

Raul Garcia jafnaði metin á 13. mínútu en Getafe fékk fullkomið tækifæri til að komast aftur yfir á 29. mínútu. Liðið fékk þá vítaspyrnu en Unai Simon sá við Jaime Mata í markinu.

Athletic tók öll völd eftir það. Yeray Alvarez kom liðinu yfir á 50. mínútu og Garcia gerði þriðja markið ellefu mínútum síðar. Alex Berenguer og Oscar de Marcos gulltryggði svo sigurinn á síðustu fimmtán mínútunum.

Lokatölur 5-1 fyrir Athletic sem er í 9. sæti með 24 stig á meðan Getafe er í 13. sæti með 23 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner