Fotbolti.net
25.01.24 - 17:41
Elvar Geir Magnússon

Þjálfarinn í þriggja leikja bann fyrir að slá Sane

Nenad Bjelica og Leroy Sane.

Nenad Bjelica og Leroy Sane.

Canon

Mynd: EPA

Nenad Bjelica stjóri Union Berlín hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að slá Leroy Sane, leikmann Bayern München, í andlitið.

Upp úr sauð á 74. mínútu í viðureign liðanna í þýsku Bundesligunni í gær þegar Sane reyndi að fá boltann frá Bjelica við hliðarlínuna.
Sjáðu atvikið: Þjálfari Union fékk rauða spjaldið fyrir að ráðast á Sane
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið: Þjálfari Union fékk rauða spjaldið fyrir að ráðast á Sane

Bjelica sló tvisvar í andlit Sane og ýtti honum frá sér. Hann fékk að líta rauða spjaldið og í dómi aganefndar þýska fótboltasambandsins segir að hann fái þriggja leikja bann og 25 þúsund evrur í sekt fyrir óíþróttamannslega framkomu.

Þessi 52 ára Króati hefur stýrt Union síðan í nóvember og getur ekki stýrt deildarleikjum gegn Darmstadt, RB Leipzig og Mainz.

Union endaði í fjórða sæti á síðasta tímabili en er í fimmtánda sæti, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Bayern er í öðru sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Bayer Leverkusen, eftir að hafa unnið Union 1-0 í gær.

Þjálfarinn í þriggja leikja bann fyrir að slá Sane
Canon

Mynd: Getty Images

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Freiburg5+1013
2Dortmund5+713
3Bayern5+1211
4Leverkusen5+610
5RB Leipzig5+109
6Augsburg5+58
7Werder508
8Mainz5+37
9Elversberg507
10Köln5-27
11Stuttgart5-16
12Hamburger5-106
13Schalke 045-25
14Frankfurt5-75
15Paderborn5-44
16Union Berlin5-124
17Hoffenheim5-43
18Gladbach5-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.