Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. febrúar 2021 08:17
Magnús Már Einarsson
Faðir Alisson drukknaði
Alisson Becker.
Alisson Becker.
Mynd: Getty Images
Jose Becker, faðir Alisson Becker markvarðar Liverpool, fannst látinn í Brasilíu í gær.

Hinn 57 ára gamli Jose fór að synda nálægt sumarhúsi sínu í RIncao do Inferno.

Jose skilaði sér ekki aftur í sumarhúsið og í kjölfarið hófst leit að honum um klukkan 17:00.

Jose fannst um miðnætti en hann hafði þá drukknað í ánni.

Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
Athugasemdir
banner