Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. febrúar 2021 17:03
Aksentije Milisic
Henry hættur með Montreal Impact vegna fjölskylduaðstæðna
Mynd: Getty Images
Thierry Henry er hættur sem þjálfari MLS liðsins Montreal Impact en hann segir að starfið hafi of mikil áhrif á fjölskyldu hans.

Henry er að flytja aftur til London.

„Þetta er mjög erfið ákvörðun. Síðast árið hefur verið mjög erfitt fyrir mig persónulega. Vegna heimsfaraldursins þá gat ég ekki hitt börnin mín," sagði Henry.

„Það var lítið að fara breytast. Því þarf ég að taka þessa ákvörðun. Að vera svona lengi í burtu frá börnunum mínum hefur tekið sinn toll, bæði fyrir mig og þau. Ég er mjög leiður yfir þessari ákvörðun en ég verð því miður að hætta með liðið."

Henry gekk vel með liðið á fyrsta tímabilinu en hann kom liðinu í útsláttarkeppnina þar sem New England Revolution sló Montreal úr keppni.

„Ég er mjög leiður en hann varð að taka þessa ákvörðun. Hann hefur verið mikið frá fjölskyldu sinni og það myndi halda áfram ef hann væri ennþá með liðið," sagði Olivier Renard, yfirmaður knattspyrnumála hjá Montreal Impact.
Athugasemdir
banner
banner