Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 25. febrúar 2021 22:45
Aksentije Milisic
Leikmenn Slavia Prag hringdu í Soucek á FaceTime eftir sigurinn
Soucek í leik með Slavia.
Soucek í leik með Slavia.
Mynd: Getty Images
Slavia Prag mætti Leicester í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld en leikið var á King Power vellinum.

Fyrri leik liðanna lyktaði með markalausu jafntefli en liðið frá Tékklandi hafði betur á erfiðum útivelli. Leiknum lauk með 0-2 útisigri Slavia og því fer liðið áfram í 16-liða úrslitin.

Tomas Soucek, leikmaður West Ham, er fyrrum leikmaður Slavia Prag en West Ham keypti hann frá liðinu. Soucek hefur verið hreint magnaður fyrir West Ham í vetur en liðið situr í 4. sæti deildarinnar.

Soucek er í miklum metum hjá Slavia en leikmenn liðsins hringdu í Tékkann á FaceTime eftir leikinn í kvöld og fönguðu með honum. Þar má sjá Soucek fagnandi í treyju Slavia Prag.


Athugasemdir
banner
banner
banner