Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 25. febrúar 2021 21:40
Aksentije Milisic
PSG pressar á Mbappe - Skrifar hann undir nýjan samning?
Þrenna á Nývangi.
Þrenna á Nývangi.
Mynd: Getty Images
PSG vill fá svar frá Kylian Mbappe varðandi það hvort hann ætli sér að skrifa undir nýjan samning við liðið. Þá vill félagið framlengja samninga sína við Neymar, Angel Di Maria og Juan Bernat.

Núverandi samningur Mbappe rennur út eftir næsta tímabil og vilja frönsku meistararnir endursemja við þessa stórstjörnu. Hann hefur mikið verið orðaður við Real Madrid.

Leonardo, yfirmaður knattspyrnumála hjá PSG sagði: „Við höfum lengi verið að vinna í nýjum samningi fyrir Mbappe. Við vitum hvað við viljum. Nú nálgumst við þann tíma þar sem við þurfum að fá svar og niðurstöðu."

PSG vill ekki lenda í því að Mbappe fari inn í næsta tímabil á sínu síðasta ári á samningi. Leikmaðurinn hefur skorað 21 mark í 30 leikjum á þessu tímabili og er talið að hann taki við keflinu af Lionel Messi og Cristiano Ronaldo sem besti leikmaður heims á næstu árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner