25.02.21 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Telja Mata á förum frá Man Utd

Mata fagnar marki.

Mynd: Getty Images

Mata fagnar marki.

Mynd: Getty Images
Manchester Evening News segir að spænski miðjumaðurinn Juan Mata muni fara frá Manchester United í sumar.
Hinn 32 ára gamli Mata verður samningslaus í sumar en United á möguleika á að bæta ári við samninginn. Samkvæmt frétt Manchester Evening News er ólíklegt að félagið geri það.

Mata hefur meðal annars verið orðaður við félög á Ítalíu undanfarnar vikur.
„Þar sem samningur hans er að enda þá er ég viss um að Juan getur rætt við önnur félög ef hann hefur áhuga á því," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, á fréttamannafundi í gær.
Mata hefur lítið spilað á tímabilinu en hann gæti byrjað gegn Real Sociedad í Evrópudeildinni í kvöld.