Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik en hann gildir út sumarið 2024.
Stefán Ingi var á láni hjá HK síðasta sumar þar sem hann fór hamförum og skoraði 16 mörk í 15 leikjum, sex mörk í tveimur leikjum í bikarnum og 10 mörk í 13 leikjum í Lengjudeildinni.
Hann hefur látið til sín taka í Lengjubikarnum með Breiðablik þar sem hann hefur skorað þrjú mörk í þremur leikjum.
Hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2019 og hefur skorað 30 mörk í 45 leikjum á vegum KSÍ.
Framherjinn ungi og efnilegi Stefán Ingi Sigurðarson framlengir út árið 2024 ??
— Breiðablik FC (@BreidablikFC) February 25, 2023
Stefán Ingi er uppalinn Bliki og var í Bandaríkjunum við nám í Boston College.
Var síðast á láni hjá HK og skoraði 16 mörk í 15 leikjum.
Það verður gaman að fylgjast með Stefáni í sumar?????? pic.twitter.com/pqiytuoJBz