Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 25. mars 2021 14:32
Elvar Geir Magnússon
Yfirlýsing: Öll félög efstu deildar sammála um breytt fyrirkomulag
Óskar Örn Hauksson fagnar marki.
Óskar Örn Hauksson fagnar marki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sævar Atli Magnússon og Helgi Valur Daníelsson.
Sævar Atli Magnússon og Helgi Valur Daníelsson.
Mynd: Haukur Gunnarsson
Öll tólf félögin í Pepsi Max-deild karla eru sammála um að styðja tillögu starfshóps KSÍ um breytingu á fyrirkomulagi efstu deildar. Tillagan var felld á síðasta ársþingi KSÍ en stefnan er að taka tillöguna aftur fyrir á næsta ársþingi.

Forráðamenn allra félaga skrifa undir yfirlýsingu þess efnis að sýna tillögunni stuðning.

„Forráðamenn félaga í efstu deild karla hafa fundað um þetta málefni og niðurstaðan er algjör samstaða um að láta breytt fyrirkomulag verða að veruleika a.m.k. tímabundið," segir í yfirlýsingunni.

Tillagan gengur út á fjölgun leikja með því fyrirkomulagi að eftir tvöfalda umferð í tólf liða deild verði deildin tvískipt. Efstu sex liðin mætast aftur innbyrðis og neðri sex einnig.

Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan

Yfirlýsing um samstöðu félaga í efstu deild karla í knattspyrnu

Í ljósi umræðu í knattspyrnuhreyfingunni um stækkun Íslandsmóts efstu deildar karla í kjölfar Ársþings KSÍ vilja félög efstu deildar koma eftirfarandi á framfæri:

Á 75. Ársþingi KSÍ var lögð fram tillaga starfshóps um keppnisfyrirkomulag efstu deildar karla. Fól það fyrirkomulag í sér 12 liða deild þar sem leikið er heima og að heiman líkt og nú er ásamt úrslitakeppni. Í úrslitakeppninni myndi efri hluti deildarinnar leika hvert við annað og sama fyrirkomulag í neðri hluta deildarinnar. Með þessu móti skapast mikil keppni allt frá neðri hluta deildarinnar upp í titil- og evrópubaráttu. Öll lið munu kappkosta að vera í efri hluta deildarinnar áður en úrslitakeppni hefst.

Úrslitakeppni mótsins er form með hæfilegri fjölgun leikja sem gefur ýmis markaðsleg tækifæri m.a. í sölu sjónvarps-og markaðsréttinda. Markmiðið með fyrirhuguðum breytingum eru til þess fallið að ná viðspyrnu á stöðu deildarinnar í alþjóðlegum samanburði þegar horft er til styrkleikalista UEFA og að auka gæði og samkeppnishæfni íslenskrar knattspyrnu og leikmanna sem leika á Íslandi.

Forráðamenn félaga í efstu deild karla hafa fundað um þetta málefni og niðurstaðan er algjör samstaða um að láta breytt fyrirkomulag verða að veruleika a.m.k. tímabundið.

Með undirritun þessarar yfirlýsingar lýsa formenn stjórna viðkomandi félaga efstu deildar yfir stuðningi við áðurnefnda tillögu og heita því að styðja nauðsynlega breytingu á lögum KSÍ á næsta ársþingi KSÍ 2022 með það fyrir augum að keppnisfyrirkomulagið taki gildi sama ár.
Athugasemdir
banner
banner