Knattspyrnustjórinn Graeme Jones hefur yfirgefið Luton Town og er talað um að það hafi verið sameiginleg ákvörðun.
Jones var ráðinn síðasta sumar og fékk hann það verðuga verkefni að stýra Luton í Championship-deildinni. Jones var þar áður aðstoðarstjóri Everton, West Brom og belgíska landsliðsins.
Undir stjórn Jones vann Luton tíu af 37 deildarleikjum sínum og var liðið í 23. sæti, sex stigum frá öruggu sæti, þegar hlé var gert á deildinni vegna kórónuveirufaraldursins.
„Við viljum þakka Jones fyrir vinnu hans síðustu 12 mánuðina," segir í tilkynningu frá Luton.
CLUB STATEMENT | Luton Town have today come to a mutual agreement with Graeme Jones on the termination of his contract as first-team manager. #COYH https://t.co/oRn8txf5uv
— @LutonTown (@LutonTown) April 24, 2020
Athugasemdir