Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. apríl 2021 08:00
Aksentije Milisic
Barcelona vill fá 52 milljónir punda fyrir Dembele
Mynd: Getty Images
Barcelona er sagt vilja fá 52 milljónir punda fyrir Ousmane Dembele en samningur hans við spænska félagið rennur út á næsta ári.

Barcelona og umboðsmaður Dembele funduðu fyrir nokkrum dögum en ekkert samkomulag náðist. Barcelona telur nú að Dembele hafi önnur plön fyrir framtíðina.

Samkvæmt Sport.es, þá telja forráðarmenn Barcelona það að hann vilji fara frá félaginu á næsta ári af því hann virðist ekki vera spenntur yfir því að skrifa undir nýjan samning.

Ef hann skrifar ekki undir nýjan samning munu Börsungar setja Dembele á sölulistann og er félagið talið vilja fá 52 milljónir punda fyrir þennan Frakka.

Barcelona keypti Dembele frá Dortmund árið 2017 fyrir 96 milljónir punda, hvorki meira né minna. Hann hefur verið mjög mikið meiddur á tíma sínum hjá Barca en hefur sýnt flotta spretti inn á milli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner