Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   sun 25. apríl 2021 14:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grikkland: Sverrir byrjaði á bekknum hjá PAOK - Lamia á fínum stað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Ingi Ingason byrjaði á varamannabekknum þegar lið hans PAOK gerði markalaust jafntefli gegn Panathinaikos á heimavelli í grísku deildinni. Liðin leika í efra umspilinu, PAOK er sem stendur í öðru sætinu og Panathinaikos í því fimmta.

Sverrir lék síðustu tíu mínútur leiksins. Framundan er mikilvægur leikur gegn AEK Aþenu í gríska bikarnum. Leikurinn er seinni undanúrslitaleikur liðanna, hann fer fram á fimmtudag og leiðir PAOK 1-0 eftir fyrri leikinn.

Lamia, félagið sem Theodór Elmar BJarnason samdi við undir lok árs, er á góðu róli í neðra umspilinu. Liðið er fimm stigum frá falli þegar tvær umferðir eru eftir. Liðið hefur náð í 25 stig í síðust fimmtán leikjum en liðið var í erfiðri stöðu þegar Elmar gekk í raðir félagsins.

Elmar lék ekki með liðinu í gær í markalausu jafntefli gegn Atromitos.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner