Fotbolti.net
25.04.21 - 17:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Spánn: Diego byrjaði annan leikinn í röð

Spánn: Diego byrjaði annan leikinn í röð
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Diego Jóhannesson var í byrjunarliði Real Oviedo í 0-1 tapi gegn Girona í dag.
Diego hefur ekki fengið mörg tækifæri á þessu tímabili en hann nýtti tækifæri sitt vel um síðustu og skoraði sigurmark Oviedo.

Eftir að hafa staðið sig vel um síðustu helgi þá fékk hann annað tækifæri í byrjunarliðinu í dag. Hann spilaði 68 mínútur í hægri bakverðinum hjá Oviedo í 1-0 tapi gegn Girona í spænsku B-deildinni.

Real Oviedo er í 14. sæti spænsku B-deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti þegar sex leikir eru eftir.

Diego á íslenskan föður og á að baki þrjá A-landsleiki fyrir Íslandi, en hann spilaði síðasta landsleik sinn 2017.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.