Fotbolti.net
25.04.23 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jamia Fields í Val (Staðfest)

Jamia Fields

Jamia Fields

Canon

Mynd: Getty Images

Hertz
Bandaríski sóknarmaðurinn Jamia Fields er búin að fá félagaskipti yfir í Val og mun leika með Íslands- og bikarmeisturunum í sumar.
Fields, sem er 29 ára gömul, er með stóran prófíl en hún hefur spilað marga leiki í efstu deild Bandaríkjanna sem er ein sterkasta deild í heimi.

Hún var síðast á mála hjá Washington Spirit sem er í þeirri deild, en hún hefur einnig leikið með Orlando Pride og Houston Dash í þeirri deild.

Þá hefur hún einnig spilað í Noregi með Arna-Björnar og Avaldsnes, en í kvöld gæti hún spilað sinn fyrsta leik með Val er liðið mætir Breiðabliki í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Valskonum er spáð þriðja sæti í Bestu deildinni í sumar.

Komnar
Arna Eiríksdóttir frá Þór/KA (var á láni)
Birta Guðlaugsdóttir frá Stjörnunni
Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir frá Aftureldingu
Haley Lanier Berg frá Danmörku
Hanna Kallmaier frá ÍBV
Hildur Björk Búadóttir frá HK (var á láni)
Jamia Fields frá Bandaríkjunum
Ísabella Sara Tryggvadóttir frá KR
Kelly Rowswell frá Bandaríkjunum
Rebekka Sverrisdóttir frá KR

Farnar
Aldís Guðlaugsdóttir í FH
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving í Stjörnuna
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hætt
Brookelynn Paige Entz til HK
Cyera Makenzie Hintzen til Ástralíu
Elín Metta Jensen hætt
Mikaela Nótt Pétursdóttir í Breiðablik (var á láni frá Haukum)
Mist Edvardsdóttir hætt
Mariana Sofía Speckmaier
Sandra Sigurðardóttir hætt
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir til Selfoss (á láni)
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen til Svíþjóðar
Valskonum er spáð þriðja sæti í Bestu deildinni.

Valskonum er spáð þriðja sæti í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.