Þorsteinn Már spilar með Ólsurum í sumar (Staðfest)

Þorsteinn Már.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Már.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Már Ragnarsson hefur tekið skóna af hillunni og ætlar að spila með Víkingi Ólafsvík í sumar. Hann tilkynnti eftir síðasta tímabil að skórnir væru farnir upp í hillu og hann væri að flytja til Stykkishólms. Þá var hann leikmaður KR.
Í færslu Víkings á Facebook kemur fram að sökum vinnu getur Þorsteinn ekki helgað sig fótboltanum að fullu en mun aðstoða liðið eins og hann getur.
„Þorsteinn er með 418 skráða KSÍ leiki í meistaraflokki þar sem hann hefur skorað 96 mörk og því ljóst að með því að fá Þorstein heim erum við að fá gríðarlega reynslu inn í hópinn. Við bjóðum Þorstein velkominn heim í Víking Ó. og hlökkum til að sjá hann aftur í Víkingstreyjunni," segir í færslunni.
Þorsteinn er 33 ára gamall og getur leyst margar stöður á vellinum. Hann lék með yngri flokum Grundarfjarðar, HSH, Víkings Ólafsvíkur og Snæfellsness en steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Snæfelli.
Hann átti frábært tímabil með Ólsurum í 2. deild tímabilð 2010 þegar hann skoraði átján mörk í 21 leik og eftir tímabilið 2011, þegar hann skoraði sex mörk í átján leikjum í 1. deild, gekk hann í raðir KR.
Hann sneri aftur til Ólafsvíkur á láni sumarið 2014 og gekk svo alfarið í raðir liðsins fyrir tímabilið 2016 og lék þá tvö tímabil með Ólsurum í efstu deild. Næsta stopp var í Garðabænum þar sem hann lék í fjögur tímabil áður en hann skipti í KR aftur síðasta vor.
Víkingur er á leið í sitt annað tímabil í 2. deild.