FH báru sigurorð af Breiðablik í stórskemmtilegum leik á Kópavogsvelli í kvöld. Leikurinn var sérstakur styrktarleikur fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru og var mikil stemning á vellinum fyrir og á meðan leik stóð.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 3 FH
Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var að vonum sáttur með sigurinn og hafði þetta að segja um hvað skóp sigurinn:
"Vinnuframlag FH-liðsins, baráttuandinn og viljinn til að vinna leikinn. Í tvígang lendum við undir, í fyrra skiptið riðlaðist leikur FH-liðsins svolítið og þá vorum við að þjást á vellinum. Þegar við náðum aftur okkar vopnum þá fannst mér við gera þetta hreint út sagt mjög vel.
Liðin buðu upp á góða skemmtun, frábær leikur, flott umgjörð og fullt af fólki. Það væri frábært ef að þetta væri alltaf svona í öllum leikjum.
Aðspurður hvort að FH-liðið gæti gert tilkall til titilsins í lok móts var Guðni hlédrægur í svörum
Ég er heiðarlegur þegar ég segi að ég sé ekkert að pæla í þessu. Þetta er bara nýbyrjað og við erum bara að horfa í að vinna andstæðinginn sem við mætum hverju sinni. Við erum ekki að pæla í neinni titilbaráttu eða neitt slíkt og ég segi það í algjörum heiðarleika."
Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan





















