„Ég er bara sár og svekkur, vonsvikinn og finn til með stelpunum sem sitja núna niðurbrotnar inni í klefa eftir að hafa spilað líklega okkar versta leik á tímabilinu“, sagði Jóhann Kristinnn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir 0-1 tap gegn Stjörnunni í Laugardalnum í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 1 Stjarnan
„Þetta var leikur þar sem ekkert gekk upp hjá okkur og kraftmikið lið Stjörnunnar mætti tilbúið í þennan leik og uppskáru það sem þær áttu skilið og ég er hræddur um að við höfum gert það líka“, hélt hann áfram.
Kayla Rollins, framherji Þróttara er aðeins komin með eitt mark í sumar og aðspurður hvort að það séu vonbrigði fyrir leikmann eins og hana segir hann:
„Já, alveg örugglega, ég held að við getum fundið eitthvað hjá öllum leikmönnum okkar sem að vantar eitthvað upp á eða gæti verið betra. Hún er búin að standa sig gríðarlega vel fyrir okkur og er að skila vinnu sem að fáir virðast taka eftir en okkur er svo sem alveg sama um það. Mörkin koma hvort sem það er hún eða Unnur eða einhver önnur sem er að spila framarlega á vellinum hjá okkur. Í dag var sóknarleikur liðsins bara ekki góður og það var ekki einum einstaklingi að kenna.“
Næsti leikur hjá Þrótturum er gegn Val og Jóhann segir þau fara brött inn í þann leik.
„Já við verðum að svara fyrir þetta. Við náðum ekki að svara fyrir, því miður, inni í þessum leik í dag. Það var ekki nóg og gott hjá okkur og við erum hundfúl með það og þetta á ekki að koma fyrir og alls ekki á okkar heimavelli. Eina sem við getum gert hér eftir er að nett skammast okkar í kvöld og vakna svo á morgun og undirbúa okkur fyrir það að mæta tvíefldar til leiks á móti Val á föstudaginn.“
Viðtalið má sjá í fullri lengd í spilaranum hér að ofan.






















