Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 20:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild kvenna: Þrjú systrapör spiluðu með Keflavík - Fyrsta tap KR
Kvenaboltinn
Mynd: Keflavík
4. umferð Lengjudeildar kvenna fór fram í dag. Haukar eru á toppnum, eina liðið með fullt hús stiga, en Ísold Hallfríðar Þórisdóttir skoraði tvennu í sigri gegn Selfossi í dag.

Grótta tapaði í fyrstu umferð en er komið með þrjá sigra í röð og er í 2. sæti eftir sigur á KR en KR er í 3. sæti og tapaði sínum fyrstu stigum í dag.

ÍA er í 4. sæti eftir sigur á botnliði Tindastóls sem leitar enn að sínum fyrsta sigri. Þá vann Völsungur sigur á Keflavík en það vekur athygli að það voru þrjú systrapör í liði Keflavíkur í gær.

Það voru þær tvíburasystur Eva Lind og Anita Lind Daníelsdætur, María Rán og Rakel Inga Ágústsdætur og tvíburasysturnar Anna og Brynja Arnarsdætur. Fótbolti.net vakti athygli á því að Aníta Lind, Eva Lind, Anna og Brynja hafi spilað saman í Lengjubikarnum fyrir ári síðan ásamt systrunum Salóme Kristínu og Thelmu Sif Róbertsdætrum. Salóme spilaði einnig í dag.

Þá skildu HK og FHL jöfn 1-1 en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik.

ÍA 5 - 0 Tindastóll
1-0 Alexa Maletis ('41 )
2-0 Alexa Maletis ('43 )
3-0 Alexa Maletis ('45 )
4-0 Madison Brooke Schwartzenberger ('56 )
5-0 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('62 )

Haukar 3 - 1 Selfoss
1-0 Ísold Hallfríðar Þórisdóttir ('26 )
1-1 Juliana Marie Paoletti ('52 )
2-1 Ragnheiður Tinna Hjaltalín ('64 )
3-1 Ísold Hallfríðar Þórisdóttir ('90 )

Grótta 2 - 0 KR
1-0 Maya Camille Neal ('30 )
2-0 Kristín Þóra Birgisdóttir ('84 )

HK 1 - 1 FHL
0-1 Celia Maria Ruano Trujillo ('3 )
1-1 Cally Queen Togiai ('29 )

Völsungur 3 - 1 Keflavík
1-0 Ragnheiður Sara Steindórsdóttir ('9 )
1-1 Anita Bergrán Eyjólfsdóttir ('13 )
2-1 Maria Fernanda Contreras Munoz ('65 )
3-1 Hildur Arna Ágústsdóttir ('76 )
Lengjudeild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 4 4 0 0 12 - 6 +6 12
2.    Grótta 4 3 0 1 11 - 7 +4 9
3.    KR 4 3 0 1 8 - 7 +1 9
4.    ÍA 4 2 0 2 9 - 6 +3 6
5.    Völsungur 4 2 0 2 8 - 6 +2 6
6.    Keflavík 4 1 1 2 9 - 7 +2 4
7.    HK 4 1 1 2 7 - 7 0 4
8.    Selfoss 4 1 1 2 7 - 8 -1 4
9.    FHL 4 1 1 2 5 - 6 -1 4
10.    Tindastóll 4 0 0 4 3 - 19 -16 0
Slapp
banner
banner
banner