„Þetta er langþráður sigur. En mér finnst deildin ótrúleg, leikir sem við höfum tapað, sem við gátum alveg unnið og allt hefur þetta verið eitthvern veginn naglbítar, aftur í kvöld" sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals eftir 1-0 úti sigur gegn Víkingum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 Valur
Hvernig fannst þér leikurinn spilast í dag?
„Eins og ég bjóst við, mjög jafn, kaflaskiptur. Mér fannst við gera mjög vel lengi og ég er mjög stoltur af liðinu að fá ekki á sig mark eftir tvo leiki í röð. Það reyndi á okkur í lokin og við stóðum það vel af okkur. Ég man ekki eftir því hvort að Víkingur skapaði eitthvað dauðafæri í þessum leik en við vorum líka hættulegri og markið er frábært."
Valur er búin að halda hreinu tvo leiki í röð eftir þennan leik.
„Varnarleikurinn er góður hjá öllu liðinu og hefur eiginlega verið það í mótinu, þó að við höfum alveg fengið á okkur mörk. Þá hefur það kannski meira verið einbeitingarleysi eða skyndisóknir eða eitthvað svoleiðis. Það er ekki mikið verið að opna okkur í opnum leik og ég stend fastur á því. En sóknarleikurinn hefur vantað upp á, en mér fannst við vera alveg beittari í dag."
Þið voruð ekki búin að vinna marga leiki fyrir þennan leik, hvað er munurinn á þessum leik og hinum leikjunum?
„Mér finnst þetta einmitt vera allt naglbítar. Hvort að þetta falli fyrir mann eða haldi einbeitingu og svona litlir hlutir, hér og þar sem kannski klikka, en klikkuðu ekki í dag. En deildin er skemmtileg eins og ég bjóst við fyrir mót. Núna geta allir unnið alla í þessu."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan























