Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mán 25. maí 2026 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mikilvægur sigur hjá Guðlaugi Victori gegn Ísaki
Mynd: Horsens
Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Horsens þegar liðið vann gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur á Lyngby í næst efstu deild í Danmörku. Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Lyngby.

Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild en Lyngby hefur þegar tryggt sér sigur í deildinni fyrir lokaumferðina. Horsens stökk hins vegar upp í 2. sæti með sigrinum í dag og er tveimur stigum á undan Esbjerg.

Breki Baldursson var ekki með Esbjeerg sem vann Hvidovre 4-1. Þá var Ari Leifsson í byrjunarliði Kolding sem vann Hillerod 3-0 en Kolding mun enda í 6. sæti.

Alex Freyr Elísson spilaði allan leikinn þegar NSÍ vann 1-0 sigur á Streymur í færeysku deildinni. NSÍ, sem er undir stjórn SIgurðar Ragnars Eyjólfssonar, er á toppnum með 26 stig eftir 11 umferðir.

Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði HamKam þegar liðið vann Lilleström 2-0 í norsku deildinni. Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliði Valerenga sem tapaði 2-0 geegn Start. HamKam er í 6. sæti með 16 stig eftir níu leiki en Valerenga er í 13. sæti með 11 stig eftir tíu leiki.

Hinrik Harðarson kom inn á undir lokin þegar Odd vann 3-1 gegn Ranheim í næst efstu deild í Noregi. Atli Barkarson var í byrjunarliði Sogndal sem tapaði 2-0 gegn Sandnes. Odd er í 4. sæti meeð 19 stig eftir níu umferðir en Sogndal er í 12. sæti með níu stig.

Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg sem gerði 1-1 jafntefli gegn Hacken í efstu deild í Svíþjóð. Ari Sigurpálsson var ónotaður varamaður. Kolbeinn Þórðarson spilaði um stundafjórðung þegar Gautaborg gerði 1-1 jafntefli gegn Mjallby. Elfsborg er í 4. sæti meeð 17 stig eftir tíu umferðir en Gautaborg er í 14. sæti með sjö stig.
Slapp
banner