Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Guðni: Það væri frábært ef þetta væri svona í öllum leikjum
Jóhann Kristinn: Eina sem við getum gert er að skammast okkar í kvöld
Matti er stoltur að hafa haldið hreinu tvo leiki í röð
Einar hefur áhyggjur af stöðunni: Stelpurnar hafa lent í þessu áður
Jón Óli léttur: Mannandskotinn kemur úr logninu úr miðbæ Reykjavíkur
Gylfi Tryggva: Ógeðistilfinning efst í kollinum
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
   mán 25. maí 2026 23:25
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Óskar Smári: Við missum ekki svefn yfir því
Kvenaboltinn
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Kampakátur að vinna leikinn, mjög ánægður með, varnarleikur liðsins náttúrulega bara frábær, hefur verið í allt sumar. Við sýndum það hérna að við erum eitt besta varnarlið deildarinnar að mínu mati“, sagði Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 0-1 sigur gegn Þrótti í Laugardalnum í dag. 


Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  1 Stjarnan

„Við gerðum það vel, okkar varnarfærslur vel og undirbúningurinn var góður fyrir leikinn. Þetta var djöfulsins barningur, barátta út um allan völl og kannski ekkert alltaf skemmtilegasti fótbolti sem var spilaður inn á milli en svona heilt yfir þá fannst mér við alveg eiga skilið (að vinna) á miðað við hvernig leikurinn spilaðist“, hélt hann áfram. 

Aðspurður hvernig hann metur byrjun síns liðs á mótinu og hvort átta stig eftir sex leiki séu minna en vonast var eftir í Garðabænum segir hann:

„Já það er minna en við vonuðumst eftir en við erum bara að horfa á frammistöðurnar okkar og frammistöðurnar hafa verið góðar. Mér finnst við hafa, við erum að vaxa, það er stígandi í því sem við erum að gera og á meðan að það er staðan þá get ég verið ánægður. Stigasöfnunin, hún er ekki nægilega góð, ég er sammála því en samt ekki, við missum ekki svefn yfir því að við séum ekki búnar að ná í fleiri stig. Það er nóg eftir af mótinu og við reynum bara að fara í hvern einasta leik til að vinna hann, rétt eins og við gerðum í dag og við munum gera aftur á laugardaginn og svo bara verður það að koma í ljós.“

Óskar var spurður út í stöðuna á hópnum sínum og færði þar slæmar fréttir af Murielle Tiernan:

„Jana er frá hún fékk högg á móti Þór/KA ef ég man rétt á Akureyri. Hún er búin að fá smá tíma núna, það er vont, góður sóknarmaður. Murr verður eitthvað meira frá, eitthvað lengur og mikið frá þannig að hún er ekkert á næstunni að koma inn. Vonandi fáum við Jönu inn sem fyrst, við værum til í að endurheimta hana.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner