Fotbolti.net
25.05.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Samningslaus Conte ekki í viðræðum við landsliðið

Samningslaus Conte ekki í viðræðum við landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Antonio Conte fráfarandi þjálfari Napoli hefur verið sterklega orðaður við landsliðsþjálfarastarfið hjá Ítalíu að undanförnu en hann neitar fyrir þær sögusagnir.
Conte spyr sig hvort ítalska landsliðið sé tilbúið að ráða topp þjálfara en Gennaro Gattuso, Luciano Spalletti og Roberto Mancini eru síðustu þrír landsliðsþjálfararnir.

„Það hafa ekki verið nein samskipti á milli mín og ítalska landsliðsins. Gjörsamlega engin. Það útilokar ekki að það verði einhver samskipti í framtíðinni," segir Conte sem stýrði Ítalíu á EM 2016. Þar gerðu Ítalir mjög gott mót og voru óheppnir að detta úr leik gegn Þýskalandi eftir vítaspyrnukeppni.

„Það er ekki einu sinni búið að kjósa um nýjan forseta fótboltasambandsins... er ítalska landsliðið tilbúið að ráða topp þjálfara? Ég heyrði eitthvað um Pep Guardiola í fjölmiðlum.

„Ef ég fengi að ráða þá myndi ég velja Pep... en býr ítalska fótboltsambandið yfir þeim fjárhæðum sem þarf til að láta það rætast? Það er of snemmt að segja.

„Ég er allavega ekki kominn með neitt samkomulag við neinn."


Líklegt að Conte hætti hjá Napoli og taki við Ítalíu
TENGT EFNI

Líklegt að Conte hætti hjá Napoli og taki við Ítalíu

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Samningslaus Conte ekki í viðræðum við landsliðið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.