Fotbolti.net
25.05.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Svæði sem Blikar herjuðu á gegn KR

Svæði sem Blikar herjuðu á gegn KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Antoni Loga Lúðvíkssyni var tíðrætt um svokallað 'cutback zone' þegar hann ræddi um leik Breiðabliks og KR. Anton Logi var maður leiksins en hann skoraði eitt og lagði upp tvö í 6-3 sigri Breiðabliks.

Hann ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn og degi síðar ræddi hann svo við RÚV.
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
TENGT EFNI

Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl

Anton var spurður út í mörkin í fyrri hálfleiknum.

„Þarna er augljóslega hægt að meiða KR-ingana, fyrsta markið er eins og teiknað á töflu: út fyrir, bolti í kanalinn og svo í fyrsta á Kristófer sem var á undan Finni. Það gekk bara mjög vel."

„Fínt dagsverk hjá mér, það voru allir að leggja í púkkið. Það skiptir máli að sem flestir taki þátt í markaskoruninni okkar."


Anton átti sérlega glæsilega stoðsendingu á Ívar Örn Árnason.

„Já, hún var góð. Ég vissi að ég myndi koma með boltann fljótt inn á teiginn þá voru KR-ingarnir seinir að skila sér í 'cutback zone-ið'. Það var einhver eðlishvöt í mér að gera það," sagði Anton Logi við Fótbolta.net.

„Við ætluðum að fara mikið aftur fyrir þá, utan á Akoto og Gabríel (varnarmenn KR). Aron Bjarna gerði það mjög vel í markinu mínu, ég kom í seinni bylgjunni í 'cutback zone-inu' sem við vissum að þeir hafa verið að ströggla með og kláraði vel," sagði Anton Logi um markið sitt í viðtalinu við RÚV.

Í ræðu Ólafs Inga Skúlasonar, þjálfara Breiðabliks, í hálfleik var einnig minnst á 'cutback' og sagði hann að það væri alltaf opið.

Þegar menn komast í svæðin við endalínu inn á vítateignum, sitthvoru megin við markteiginn, eru menn komnir í 'cutback' svæði. Þangað vilja menn gjarnan komast og gefa svo boltann fyrir eða út í teiginn; yfirleitt þá í dauðafæri fyrir samherjana.



Var að glíma við meiðsli í viðbeini
Anton Logi glímdi við erfið meiðsli síðustu 7-8 mánuði en er að kominn á fullt. Hann spilaði í gegnum meiðslin til að byrja með en hætti því svo. Í vetur fékk hann aðstoð frá sjúkraþjálfara á Írlandi.

„Staðan á mér er bara góð, ég er að komast hægt og rólega í gott stand, mér líður allavega mjög vel í líkamanum, er ekkert verkjaður, en er búinn að vera lengi frá og var náttúrulega ekkert með á undirbúningstímablinu. Við erum búnir að gera vel í að koma mér í stand, trappa mig upp og núna er ég að verða nokkuð 'fit'. Ég var að glíma við beinbjúg í lífbeininu og verki þar í kring, niður í vinstri nárann og upp í kviðinn. Við ákváðum að fara aðrar leiðir en að fara í aðgerð og það er sem betur fer að virka núna," sagði Anton Logi við Fótbolti.net. Hann talaði um beinbjúg í viðtalinu en hann fór líka í aðgerð vegna meiðsla á öxl í desember. Hin meiðslin héldu honum frá í lengri tíma.
Svæði sem Blikar herjuðu á gegn KR
Canon

Mynd: ASAnalysis

Svæði sem Blikar herjuðu á gegn KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svæði sem Blikar herjuðu á gegn KR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.10+2828
2KR10+1525
3Fram9+920
4Breiðablik9+715
5Valur10-315
6ÍA9-412
7Keflavík10-711
8KA9-310
9Stjarnan10-410
10ÍBV10-68
11Þór10-196
12FH10-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.