Fotbolti.net
25.05.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Þýskaland í dag - Paderborn á heimavelli í úrslitaleiknum

Þýskaland í dag - Paderborn á heimavelli í úrslitaleiknum
Canon

Mynd: EPA

Lokaleikur þýska deildartímabilsins fer fram í kvöld þegar Paderborn tekur á móti Wolfsburg.
Paderborn endaði í þriðja sæti í næstefstu deild þýska boltans og vann sér þar með inn umspilsleik um sæti í efstu deild.

Þar mætir Paderborn sterku liði Wolfsburg sem átti hörmulegt tímabil en náði að bjarga sér fyrir horn frá falli beint niður um deild með sigri í lokaumferðinni.

Liðin eigast við í seinni viðureigninni sín á milli en fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli í Wolfsburg.

Heimamenn voru umtalsvert sterkari aðilinn í Wolfsburg og sköpuðu mörg góð færi en tókst einhvern veginn ekki að nýta neitt þeirra. Paderborn fær hér gullið tækifæri til að komast upp um deild.

Leikur kvöldsins:
18:30 Paderborn - Wolfsburg (Viaplay)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.