Simon Mullock hjá Mirror segir að portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo sé ekki til sölu í sumar.
Umboðsmaður Ronaldo, Jorge Mendes, ræddi við Todd Boehly, eiganda Chelsea, í dag en þeir ræddu þeir möguleg félagaskipti hans til Lundúnarliðsins.
Ekki er ljóst hvort Chelsea ætli að reyna að fá Ronaldo í sumar en leikmaðurinn er opinn fyrir því að fara frá United.
Þýska félagið Bayern München hafnaði tækifærinu á að fá Ronaldo á dögunum en leikmaðurinn er sagður áhyggjufullur yfir döprum sumarglugga félagsins.
Mullock segir frá því í grein sinni í dag að Ronaldo sé ekki, undir neinum kringumstæðum, til sölu í sumar.
Ronaldo, sem er 37 ára, mun klára samning sinn hjá United og spila undir stjórn Erik ten Hag á næsta tímabili en portúgalski sóknarmaðurinn á ár eftir af samningi sínum.
Athugasemdir