25.07.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Ceballos í Arsenal á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur fengið miðjumanninn Dani Ceballos á láni frá Real Madrid út komandi tímabil.
Tottenham vildi einnig fá Ceballos en Arsenal hafði betur í baráttunni um hann.
Hinn 22 ára gamli Ceballos kom til Real Madrid frá Real Betis árið 2014 en hann á sex landsleiki að baki með spænska landsliðinu.
Ceballos mun leika í treyju númer 8 hjá Arsenal en Aaron Ramsey var með það númer áður en hann fór til Juventus í sumar.

„Ég er mjög stoltur af því að klæðast þessari treyju. Ég er að ganga til liðs við sögufrægt félag í ensku úrvalsdeildinni og þetta er skref fram á við á ferli mínum," sagði Ceballos.
🇪🇸 #HolaDani 👋
— Arsenal FC (@Arsenal) July 25, 2019
Welcome to The Arsenal, @DaniCeballos46 😎 pic.twitter.com/8gZLggahJZ