Fotbolti.net
25.07.22 - 10:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ben Davies verðlaunaður með nýjum samningi

Ben Davies verðlaunaður með nýjum samningi
Canon

Mynd: EPA

Velski varnarmaðurinn Ben Davies hefur fengið nýjan samning hjá Tottenham. Hann skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2014-15.

Davies gekk í raðir Tottenham frá Swansea árið 2014 og hefur verið hjá félaginu í átt ár.
Davies lék lykilhlutverk í leikkerfi Antonio Conte sem vinstri miðvörður í þriggja miðvarðakerfi. Fram að komu Conte, sem tók við snemma á síðasta tímabili, hafði Davies langoftast spilað sem vinstri bakvörður.

Davies er 29 ára gamall og kom við sögu í 43 leikjum á síðasta tímabili. Það er hans leikjahæsta tímabil hjá Tottenham til þessa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.