Fotbolti.net
25.07.22 - 23:41
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu dýfuna: Neymar fiskaði víti í æfingaleik

Sjáðu dýfuna: Neymar fiskaði víti í æfingaleik
Canon

Mynd: EPA

PSG rúllaði yfir Gamba Osaka í æfingaleik í morgun þar sem Neymar skoraði tvö mörk.

Brasilíska stórstjarnan skoraði annað mark PSG í leiknum úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur eftir rétt rúmlega hálftíma leik.

Brotið má sjá hér fyrir neðan en útlit er fyrir að varnarmaðurinn hafi ekki snert Neymar, heldur hafi Brassinn bara verið að þykjast. 

Neymar hefur oft verið gagnrýndur fyrir að vera með leikaraskap en það er óvanalegt að leikmenn reyni að plata dómara í svokölluðum æfinga- eða vináttuleikjum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.